C10 kemur sterkur inn

C10 er nýr bíll úr smiðju kínverska bílaframleiðandans Leapmotor. Bíllinn var frumsýndur hér á landi sl. haust og eru fyrstu bílarnir nú komnir á götuna. C10 er ódýrasti rafbíll landsins í sínum stærðarflokki og stekkur hann sterkur inn á markaðinn enda aflmikill og vel útbúinn.