Hugðust smygla þúsundum lifandi maura frá Kenía

Kínverskur maður var handtekinn á flugvellinum í Naíróbí, höfuðborg Kenía, í síðustu viku eftir að mikið magn lifandi maura fannst í ferðatöskunni hans. Hann hafði ætlað að smygla yfir 2.000 drottningum af blökkumaurategund úr landinu. Maurarnir voru ýmist geymdir í plasthylkjum eða vafðir inn í bréfþurrkur. Maðurinn keypti maurana af heimamanni sem einnig hefur verið handtekinn. Kaupverðið hljóðaði upp á því sem nemur rétt tæplega 10 þúsund íslenskum krónum fyrir hverja 100 maura. Mennirnir hafa báðir lýst yfir sakleysi sínu. Að því er segir í frétt BBC hafa yfirvöld í Kenía varað við aukinni eftirspurn eftir blökkumaurum í Evrópu og Asíu. Safnarar halda maurana sem gæludýr. Gert er ráð fyrir að fleiri verði handteknir en rannsókn málsins hefur teygt sig til nokkurra bæja þar sem grunur leikur á að fólk fangi maura ólöglega. Í maí í fyrra voru fjórir menn dæmdir til eins árs fangelsis eða til greiðslu sektar upp á tæpa milljón króna fyrir hafa reynt að smygla þúsundum lifandi drottninga út úr landinu. Maurarnir voru á leið til safnara í Evrópu og Asíu.