Gylfi Þór og Orri Steinn í hópnum gegn Kanada og Haíti

Ísland mætir Kanada laugardaginn 28. mars klukkan 17 og Haíti svo þriðjudaginn 31. mars klukkan 16:30. Báðir leikir verða leiknir í Toronto í Kanada. Bæði Kanada og Haíti eru að búa sig undir þátttöku á heimsmeistaramótinu í sumar og reiknar Arnar með að liðin leggi talsvert meira undir en í hefðbundnum vináttuleikjum. Gylfi Þór og Orri Steinn inn - Albert úti vegna meiðsla Gylfi Þór Sigurðsson hefur ekki verið í hópnum hjá Arnari í stærstu verkefnum liðsins frá því Arnar tók við. Gylfi Þór var valinn fyrir vináttuleik gegn Mexíkó fyrr í vetur og er áfram í hópnum, enda segir Arnar hann hafa mikið fram að færa. Orri Steinn Óskarsson hefur verið fyrirliði frá því Arnar tók við og snýr aftur í hópinn nú eftir þrálát meiðsli. Síðustu landsleikir hans voru gegn Kósóvó í umspili Þjóðadeildarinnar í mars á síðasta ári. Albert Guðmundsson er hins vegar fjarri að þessu sinni. Hann hefur verið að glíma við meiðsli á ökkla og Arnar vildi gefa honum færi á að jafna sig almennilega af þeim meiðslum núna. Hópur Íslands er svona: Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylldand - 13 leikir Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 20 leikir Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 27 leikir, 2 mörk Logi Tómasson - Samsunspor - 13 leikir, 1 mark Daníel Leó Grétarsson - Slask Wroclaw - 29 leikir Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 51 leikur, 2 mörk Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 65 leikir, 4 mörk Aron Einar Gunnarsson - Al Gharafa-SC - 107 leikir, 5 mörk Dagur Dan Þórhallsson - CF Montréal - 7 leikir Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 56 leikir, 5 mörk Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 41 leikur, 6 mörk Gylfi Þór Sigurðursson - Víkingur R. - 84 leikir, 27 mörk Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 34 leikir, 1 mark Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 10 leikir Kristall Máni Ingason - SK Brann - 6 leikir Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 52 leikir, 6 mörk Mikael Neville Anderson - Djurgardens IF - 37 leikir, 2 mörk Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 34 leikir, 2 mörk Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 7 leikir, 1 mark Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 16 leikir, 7 mörk Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 28 leikir, 3 mörk Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 9 leikir, 2 mörk