Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir þörf á þjóðarsátt til að vinna bug á verðbólgu og hækkandi vöxtum. Samtökin hafa áhyggjur af því að atvinnuleysi geti aukist á næstunni. „Seðlabankinn er með skýr aðvörunarorð í dag. Þetta eru talsverð tíðindi að Seðlabankinn skuli fara að hækka vexti núna og í rauninni mátti litlu muna að vextir yrðu ekki hækkaðir meira,“ segir Sigurður. „Þetta er viðsnúningur frá því sem var. Við teljum að þarna séum við komin í ákveðinn vítahring.“ Segir skort vera á forystu ríkisstjórnarinnar Sigurður segir böndin beinast að ríkinu vegna launahækkana opinberra starfsmanna umfram aðra og aðgerða sem aukið hafa verðbólgu. „Það sem blasir við hér er að það hefur skort upp á forystu ríkisstjórnarinnar í þessum málum og við munum ekki rjúfa þennan vítahring öðruvísi en svo að ríkið taki ábyrgð. Til þess að gera það þarf einfaldlega þjóðarsátt.“ Hann segir landsmenn verða að koma saman og finna samhljóð um það hvernig hægt sé að ná tökum á stöðunni. „Það fer saman mikil verðbólga, háir vextir, aukin svartsýni og hækkandi atvinnuleysi. Þetta er mjög slæm þróun sem krefst tafarlausra viðbragða ef verðbólgubálið á ekki að breiðast meira út.“ Stjórnendur iðnfyrirtækja eru svartsýnni en áður samkvæmt nýrri könnun SI. Sigurður segir að þegar óvissa sé í heimshagkerfinu þurfi meira til að ná árangri. „Það er allt að fjórðungur stjórnenda sem að segir núna að starfsfólki muni fækka á næstunni og þetta er mikil breyting frá fyrri árum. Þannig að meiri svartsýni gætir og við höfum áhyggjur af því að atvinnuleysi muni aukast á næstunni.“