„Nú hafi orðið bak­slag“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það vond tíðindi að Seðlabankinn hafi séð sig knúinn til að hækka stýrivexti á ný, þótt þeir séu enn talsvert lægri en haustið 2024. Hún segir ljóst að verðbólguvæntingar þurfi að slá niður og að ríkisstjórnin muni ekki hvika frá áætlun um að reka ríkissjóð réttum megin við núllið.