Sem íbúi og starfsmaður í Kópavogi er ég hugsi yfir forgangsröðun fjármuna pólitíkunnar í Kópavogi. Nú hefur verið í umræðunni menningarmiðstöð sem á að rísa í Smáralind. Ekki misskilja mig en ég tel að menning og bókasöfn séu mikilvægur þáttur í okkar samfélagi. Meðal annars eigum við þetta dásamlega bókasafn í Hamraborg sem er eitt það flottasta á landinu.