Umfangsmikil rannsókn á hópárás í bílakjallara

Rannsókn lögreglu á lífshættulegri líkamsárás í Túnunum í Reykjavík á mánudag er umfangsmikil en miðar ágætlega, að sögn lögreglu. Fimm eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa ráðist að þremur mönnum. Einn er enn á gjörgæslu. Árásin var gerð í bílakjallara í Borgartúni. „Rannsóknin er í fullum gangi,“ segir Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Henni miðar ágætlega en hún er umfangsmikil.“ Sá sem liggur á sjúkrahúsi sé með þónokkra áverka. Lögregla vill lítið gefa upp um rannsóknina að svo stöddu. Vísir hermir að eggvopni og kylfum hafi verið beitt . Aðspurður hvort vopni hefði verið beitt sagði Ævar Pálmi það vera til rannsóknar. Sjö voru handteknir í tengslum við árásina aðfaranótt þriðjudags. Fjórir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags og sá fimmti til miðvikudags í næstu viku. Þeir sem eru í gæsluvarðhaldi eru innflytjendur, segir Ævar Pálmi. Hann sagði ekki unnt að greina frá því að svo stöddu hvers vegna einn var úrskurðaður í lengra gæsluvarðhald en hinir né hvort aðrir er þeir sem eru í gæsluvarðhaldi séu grunaðir í tengslum við árásina.