Leikritið Gæðablóð var frumsýnt fimmtudaginn 12. mars á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjöldi góðra gesta úr leikhússenunni, menningarbransanum og öðrum geirum mætti til að sjá þá Unnstein Manúel Stefánsson, Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Kristínarson stíga á svið.