Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) skoðar hvort fyrirkomulag sölu á áfengi samræmist samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eftir að stofnuninni barst kvörtun þess efnis. ESA hefur krafið íslenska ríkið svara vegna tiltekinna þátta fyrirkomulagsins. Þetta kemur fram í bréfi sem ESA hefur sent fjármálaráðuneytinu. Þar segir að í nóvember hafi ESA borist kvörtun gegn íslenska ríkinu vegna einokunarstöðu ÁTVR á smásölumarkaði. Í kvörtuninni er rakið að forsendur fyrir einokun ÁTVR séu brostnar og þar af leiðandi brjóti þær í bága við EES-samninginn. Í fyrsta lagi hafi íslenska ríkið þegar leyft sölu áfengra drykkja á framleiðslustað, með ákveðnum takmörkunum. Í öðru lagi hafi sölu áfengis í fríhafnarverslunum verið útvistað til einkaaðila eftir útboð og í þriðja lagi hafi aðgengi að áfengum drykkjum aukist undanfarna tvo áratugi sem gengur þvert gegn markmiðum ríkiseinokunar, sem eru að draga úr áfengisneyslu og bæta lýðheilsu. Í bréfinu er rakið að ESA sé kunnugt um þá þróun sem orðið hefur á Íslandi undanfarin ár, þar sem einkareknar netverslanir, sem skráðar eru í öðrum EES-ríkjum, selji áfengi beint til neytenda. Ríkiseinokun á áfengissölu eigi sér langa hefð á Íslandi, enda sé hún byggð á lýðheilsusjónarmiðum. EES-samningurinn heimili þess háttar ríkiseinokun að því gefnu að jafnræðis sé gætt. Í bréfinu er vísað til tveggja dómafordæma þar sem Noregur og Svíþjóð voru talin hafa brotið gegn Evrópureglum er varða fyrirkomulag áfengissölu og gætu þau fordæmi átt skírskotun til fyrirkomulagsins á Íslandi. Ríkið þarf að rökstyðja gráa svæðið í netverslun Svo ESA geti lagt mat á réttmæti kvörtunarinnar hefur stofnunin farið fram á að íslenska ríkið svari sjö spurningum er varða fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi. Meðal annars er íslenska ríkið beðið um að leggja mat á áhrif þess að leyfa sölu áfengis á framleiðslustað, hvernig löggjafinn komst að þeirri niðurstöðu að takmarka veitingu slíks leyfis við sölu áfengis undir 12 prósenta styrkleika og hvaða sjónarmið lágu til grundvallar útboði á sölu áfengis í fríhöfnum og hvort kannað hafi verið hvort slíkt stæðist ákvæði EES samningsins. Enn fremur er óskað eftir afstöðu stjórnvalda til netverslana með áfengi og hvernig ríkið réttlætir slíka undanþágu frá einokun ÁTVR og hvort ríkið geti yfir höfuð réttlætt ríkiseinokun með vísan til lýðheilsu. Hefur ríkið frest til 20. apríl til að svara fyrirspurn ESA.