Persaflóaríki fordæma árás á íranska gasvinnslu

Árás Ísraelshers á íranska gasvinnslu við Persaflóa er hættuleg stigmögnun átaka, segir utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Árásin var gerð með samþykki og í samráði við bandarísk stjórnvöld. Þetta hefur Axios eftir tveimur heimildarmönnum úr ísraelsku stjórnsýslunni. Pars er á meðal stærstu gasvinnslusvæða heims. Það er á grunnsævi í Persaflóa, á milli Írans og Katar, og þaðan sækja bæði ríki gas úr jörðu. Árásin var gerð á þeim hluta Pars sem er undir írönskum yfirráðum. Hóta árásum á vinnslustöðvar í eigu Bandaríkjamanna Þetta er í fyrsta sinn sem Ísraelar gera árás á gasvinnslur Írana en þær eru undirstaðan fyrir efnahag landsins. Enginn særðist í árásinni. Íransher hefur varað við að hann ætli að bregðast harkalega við árásum á orkuinnviði landsins. Allar olíu- og gasvinnslustöðvar í heimshlutanum sem Bandaríkjamenn eigi hlut í séu nú skotmark. Önnur ríki við Persaflóa hafa fordæmt árásina, ríki sem hingað til hafa haft í nógu að snúast við að verjast flugskeytum Íranshers. Utanríkisráðuneyti Katar segir árásina hættulega og að hún sé ábyrgðarlaust skref. Ógn við almenna borgara og orkuöryggi Í yfirlýsingu utanríkisráðuneytis Sameinuðu arabísku furstadæmanna segir að í árásinni felist hættuleg stigmögnun átaka. Árásir á orkuinnviði feli í sér ógn við orkuöryggi á heimsvísu. Þær geri almenna borgara og borgaralega innviði berskjaldaða fyrir hættum stríðsátaka, auk þess sem þær geti haft alvarleg áhrif á umhverfið. Eftir árásina hefur gasflutningur frá Íran til Íraks stöðvast. Um þriðjungur af því gasi sem notað er í landinu er flutt inn frá Íran. Heimsmarkaðsverð olíu tók stökk upp á við eftir árásina og hefur hækkað um fimm prósent.