Starfsmaður leikskóla á Akranesi sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Fundað var með foreldrum barna á leikskólanum í gær. Lögreglan á Vesturlandi segir rannsókn málsins í algjörum forgangi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var starfsmanninum sleppt að lokinni yfirheyrslu og ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Vann meðal annars á deild með þriggja ára börnum Maðurinn hóf störf á leikskólanum fyrir mánuði síðan og starfaði meðal annars á deild með þriggja ára börnum. Akranesbær hélt fund með foreldrum í gær. Á fundinum voru fulltrúar lögreglu, barnaverndar, barna- og menntasviðs, kynfræðingur, sálfræðingur og leikskólastjórnendur. Þar átti að gefa foreldrum aðgang að sérfræðingum og svara spurningum eins og hægt væri. Akranesbær vinnur samkvæmt verkferlum sem voru hannaðir eftir að starfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík var handtekinn 2024, og síðar ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Í tölvupósti sem leikskólastjórnendur sendu foreldrum kemur fram að ef eitthvað í fari barna þeirra valdi áhyggjum eigi að hafa samband við Barnaverndarþjónustu Akraness. Maðurinn verður ekki við störf á leikskólanum meðan á rannsókn stendur.