Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Við ræðum við föðurinn í kvöldfréttum og förum yfir rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem var birt í dag. Þar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar.