Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti um stýrivaxtaákvörðun í dag. Óvissa í efnahagsmálum vegna átakanna í Mið-Austurlöndum er meðal skýringa á því að ekki sé unnt að lækka vexti að svo stöddu. Stýrivextir voru lækkaðir þrisvar í Bandaríkjunum í fyrra en hafa haldist óbreyttir síðan í janúar. Þeir nema frá 3,5% til 3,75%. Verðbólga mældist 2,4% í febrúar. Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist eiga von á því að átökin í Mið-Austurlöndum myndu leiða til hærri verðbólgu til skamms tíma. Óvissa sé um langtímaáhrifin. Jerome Powell.AP / Manuel Balce Ceneta