Íslensku tónlistarverðlaunin – Beint streymi

Íslensku tónlistarverðlaunin eru uppskeruhátíð íslenska tónlistargeirans þar sem íslenskt tónlistarfólk sem kemur úr öllum stefnum og straumum er verðlaunað fyrir það sem stóð upp úr á árinu 2025. Athöfnin er haldin í Silfurbergi í Hörpu og hefst klukkan 19:45 í beinni útsendingu á RÚV. Verðlaunað er fyrir hljómplötur, lög og tónverk, flutning, söng, tónlistargrafík og myndbönd, upptökustjórn og textagerð.