Lauf­ey sigursælust og Todmobile heiðruð

Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Hörpu við hátíðlega athöfn. Fjöldi tónlistarmanna steig á svið og var veislustjórn í höndum Friðriks Ómars. Laufey Lín var hlutskörpust með þrenn verðlaun, Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin og hljómsveitinni Todmobile voru veitt heiðursverðlaun.