„Óásættanleg meðferð á dýrum“

Ganga þarf lengra í lögum um velferð dýra segir atvinnuvegaráðherra. Abúnaður og meðferð á minkum í minkabúum sem voru til umfjöllunar í Kveik í gærkvöld séu óásættanleg. „Óásættanleg meðferð á dýrum“ Í þætti Kveiks um loðdýrarækt og aðbúnað í minkabúum hér á landi kom fram að dæmi væru um að minkarnir væru alla ævi í litlum búrum við slæmar aðstæður. Sýnd voru blóðug og sár dýr sem sum höfðu nagað sig inn að beini vegna kvíða og streitu. „Þessi myndskeið sýna auðvitað bara óásættanlega meðferð á dýrum og það þarf að bæta úr því og hefur auðvitað verið gert að ákveðnu leyti, en það þarf að ganga lengra“, segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram heildarendurskoðun á lögum um velferð dýra næsta vetur. Hún segir myndskeið í Kveik í gærkvöld, af aðbúnaði minka í minkabúum hér á landi, sýna óásættanlega meðferð á dýrum. Hanna Katrín segir að þrátt fyrir að lög um velferð dýra frá 2013 hafi verið stórt skref í átt að úrbótum í þessum málaflokki séu þau komin til ára sinna. Ráðuneytið sé að leggjast í endurskoðun á þeim og vonast hún til að leggja fram frumvarp á næsta þingvetri. „Við þurfum einfaldlega að svara kalli tímans þegar kemur að því hvernig við umgöngumst dýr og það verður markmiðið með þessari endurskoðun.“ Mörgum sé misboðið hversu langan tíma taki að gera úrbætur Myndböndin, sem finnskir dýraverndarsinnar tóku í óleyfi, sýndu minka í sláandi ásigkomulagi, veika, slasaða og dauða. „Það er eitt sem að mér virðist einsýnt, bara á umræðunni í þennan tíma sem ég hef verið í ráðuneytinu, er að mörgum misbýður hvað langur vegur líður frá því að einhver aðili er uppvís að því að brjóta gegn velferð dýra, þar til einhverjar úrbætur eru gerðar,“ segir Hanna Katrín. „Það er nokkuð sem ég hef mikinn hug á að gera gangskör að því að bæta úr í þessari endurskoðun.“ Hanna Katrín segir það líklega merki um að neytendur séu á undan löggjafanum, að aðeins eitt minkabú sé eftir af þrjátíu sem voru starfandi 2017, og minnkandi eftirspurn sé þar stór áhrifaþáttur. Hún segir þróunina víða um Evrópu hafa verið að banna loðdýrarækt og ekki útilokað að Ísland fari sömu leið. „Auðvitað er það líka undir, hvort loðdýrarækt sé eitthvað sem eigi að banna og heyri bara fortíðinni til.“