Mikið var um dýrðir í Silfurbergi í Hörpu í kvöld þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í beinni útsendingu á RÚV. Verðlaunahátíðin er uppskeruhátíð tónlistargeirans, þar sem íslenskt tónlistarfólk sem kemur úr öllum stefnum og straumum er verðlaunað fyrir það sem stóð upp úr á árinu 2025. Verðlaun voru veitt fyrir hljómplötur, lög og tónverk, flutning, söng, tónlistargrafík og myndbönd, upptökustjórn og textagerð. Flytjendur ársins í hinum ýmsu flokkum eru Laufey, Tómas Jónsson, RAKEL og Óður. Plötur ársins eru meðal annars Dyrnar með Birni, All is Love and Pain in the Mouse Parade með Of Monters and Men og A Matter of Time með Laufeyju. Handhafi heiðursverðlaunanna í ár er hljómsveitin Todmobile sem gaf út sína fyrstu plötu árið 1989 og hefur heillað og glatt þjóðina með fjölmörgum plötum. Síðustu ár hefur hljómsveitin vakið athygli fyrir öflugt tónleikahald þar sem öllu er tjaldað til. Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin. Hún stendur á tímamótum á sínum listræna ferli. Hún er enn á upphafsstigi ferilsins en árið 2025 fór hún að móta listræna rödd og finna sér farveg innan djasssenunnar. Hún steig fram sem hljómsveitarstjóri á fyrstu plötu sinni, A Place to Bloom, og fylgdi henni eftir með útgáfutónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur. Annað árið í röð fékk þjóðin að kjósa um það listafólk sem þótti skara fram úr árið 2025. Við samsetningu listans var streymi, sala, útvarpsspilun og tónleikaflutningur hafður til hliðsjónar sem og athygli almennings. Á listanum voru Herra Hnetusmjör, Birnir, Daniil, Páll Óskar og Benni Hemm Hemm, GusGus og Laufey. Í ár varð Laufey fyrir valinu. Allir verðlaunahafar eru: Bjartasta vonin – Sara Mjöll Magnúsdóttir Sara Mjöll steig fram sem hljómsveitarstjóri árið 2025 með útgáfu fyrstu plötu sinnar, A Place to Bloom, og fylgdi henni eftir með útgáfutónleikum á Jazzhátíð í Reykjavík. Hún flutti eigið efni með Stórsveit Reykjavíkur, kom fram með eigin hljómsveitum og er eftirsóttur meðleikari í fjölbreyttum verkefnum bæði sem Hammond-orgelleikari og píanóleikari. Sara er enn á upphafsstigi ferils síns en árið 2025 markaði tímamót þar sem hún fór að móta listræna rödd og finna sér farveg innan djasssenunnar. Að mati dómnefndar undirstrika metnaður hennar, frumkvæði og framhaldsnám í New York að hér er á ferðinni tónlistarkona sem á eftir að láta að sér kveða á komandi árum. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna – Todmobile Segja má að hljómsveitin Todmobile hverfist um þrjá einstaklinga sem höfðu hvert um sig kvatt sér hljóðs og vakið athygli fyrir tónlistarsköpun sína í mismunandi myndum. Þetta voru Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson í hljómsveitinni Pax Vobis, Eyþór Arnalds sem var í Tappa Tíkarassi og Andrea Gylfadóttir sem sló í gegn með Grafík og lauk prófi með bravúr sem óperusöngkona frá Söngskólanum í Reykjavík. Þorvaldur og Eyþór fóru samhliða í gegnum nám í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Þeir þóttu með eindæmum hæfileikaríkir og sýndu fljótt að þeir syntu á einhvern hátt á móti ríkjandi straumum í tónsmíðasenunni á Íslandi. Það varð því fljótt ljóst að samkrull þeirra þriggja yrði einstakt á sinn hátt og áhrifaríkt. Fyrsta plata þeirra leit dagsins ljós árið 1989 og bar titilinn Betra en nokkuð annað. Gagnrýnendur voru sammála um að hún væri eitt efnilegasta byrjendaverk í sögu dægurtónlistar hér á Íslandi þar sem sveitin lagði grunninn að sérkennum sínum, sem er blanda af framsæknu rokki, raf-poppi og klassískri tónlist. Hljómsveitin lagði allt í sölurnar þegar kom að tónleikahaldi og heillaði með geislandi framkomu sinni á sviði og vönduðu yfirbragði. Hljómsveitin hefur ávallt skartað hæfileikaríkum hljóðfæraleikurum og í dag skipa Todmobile þau Andrea, Þorvaldur Bjarni, Eyþór Arnalds, Eiður Arnarsson, Kjartan Valdemarsson og Ólafur Hólm Einarsson. Eyþór Ingi Gunnlaugsson starfaði með sveitinni í mörg ár þegar nafni hans, Eyþór Arnalds, tók sér hlé. Vilhjálmur Goði söng til skamms tíma en fyrir nokkru sneri Eyþór aftur. Todmobile hefur gefið út fjölmargar plötur og má þar nefna Betra en nokkuð annað, Todmobile, Opera, 2603, Spillt og Perlur og svín. Sveitin hefur hlotið fjölmörg verðlaun í gegnum tíðina, þar á meðal fyrir lag ársins, plötu ársins, flytjendur, lagahöfunda, textahöfunda og hljómsveit ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Lög eins og Pöddulagið, Í tígullaga dal, Brúðkaupslagið, Stelpurokk, Lommér að sjá, Ég heyri raddir, Stúlkan og mörg fleiri hafa heillað þjóðina í áratugi. Á síðustu árum hefur Todmobile vakið einna mesta athygli fyrir öflugt tónleikahald þar sem öllu er tjaldað til. Auk þess að útsetja tónlistina fyrir sinfóníuhljómsveit og kóra hafa þau fengið heimsþekkt tónlistarfólk sem sérstaka gesti. Þannig hefur hljómsveitinni, að mati dómnefndar, tekist að halda áfram að heilla og gleðja gamla aðdáendur um leið og hún dregur yngri kynslóðina að töfrum tónlistar sinnar.