Endurbættur kirkjuturn hífður á Mosfellskirkju

Kirkjuturninn á Mosfellskirkju í Mosfellsdal var hífður aftur á kirkjuna í dag eftir lagfæringar. Turninn var tekinn niður fyrir jól, eftir að í ljós komu miklar skemmdir á burðarvirki. Einar Gunnarsson, vertaki og verkefnastjóri, segir framkvæmdir við kirkjuna hafa staðið yfir í á annað ár, en ráðist var í verkið í byrjun október 2024. „Í upphafi var verið að laga kirkjuna að utan og komast að því hvaðan raki og ólykt kom. Það var mikill raki í húsinu og mygla. Þegar við vorum í miðju verki var stoppað og gólfið skoðað og þá kom í ljós að það var mikill raki undir gólfinu og annað,“ segir Einar. Mikil áskorun Tæplega 61 ár er liðið frá því kirkjan var vígð, þann 4. apríl árið 1965 Einar segir þetta verkefni hafa verið mikla áskorun. „Þetta reynir oft á þolinmæli og útsjónarsemi. Það er ekki mikið um teikningar þegar svona er í gangi. Menn vinna bara á reynslu. Það eru margir sem koma að þessu verkefni, það er sóknarnefnd, undirverktakar, rafvirkjar, píparar og múrarar og annað slíkt. Þannig það þarf að stilla alla strengi saman.“ Til stendur að klára allar framkvæmdir við kirkjuna fljótlega eftir páska. „Annars er turninn fullbúinn með nýyfirförnum kirkjuklukkum og nýjum kopar og öllu slíku. Í vor verður vonandi bara fyrsta messa hérna, endurvígsla og tilheyrandi fögnuður,“ segir Einar.