Það myndi draga úr óvissu og slá á hækkun verðbólguvæntinga ef aðilar vinnumarkaðarins kæmu strax út með þau skilaboð að það væru ekki að fara hefjast átök á vinnumarkaði með því að virkja uppsagnarákvæði kjarasamninga, að sögn seðlabankastjóra. Að því marki sem frumvarp stjórnvalda sem miðar að því að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu hefur áhrif á trúverðugleika ríkisfjármála þá væri það jákvætt innlegg að falla frá þeim áformum við núverandi aðstæður.