Liverpool sem tapaði fyrir Galatasaray í Tyrklandi í síðustu viku 1-0 sneri taflinu sér í vil á heimavelli sínum, Anfield í kvöld og vann þar 4-0 sigur. Samanlagt hafði Liverpool því betur í einvíginu 4-1 og er komið áfram í 8-liða úrslit og mun mæta ríkjandi Evrópumeisturum í liði PSG þar. Dominik Szoboszlai, Hugo Ekitike, Florian Wirtz og Mohamed Salah skoruðu mörk Liverpool í kvöld. Salah brenndi einnig af vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks í stöðunni í 1-0. Það kom þó ekki að sök þar sem Liverpool vann leikinn afar örugglega. Barcelona rústaði Newcastle 7-2 fyrr í kvöld og vann það einvígi samanlagt 8-3. Tottenham vann Atlético Madríd 3-2 sem dugði þó ekki til að komast áfram. Madrídarliðið vann fyrri leikinn 5-2 og komst því áfram samanlagt 7-5. Þá bar Bayern München sigurorð af Atalanta, 4-1 og vann þá rimmu 10-2. Þessi lið mætast í 8-liða úrslitum PSG - Liverpool Real Madríd - Bayern München Barcelona - Atlético Madríd Sporting - Arsenal Fyrri leikirnir verða spilaðir 7. og 8. apríl og síðari leikirnir viku síðar.