Jarðskjálftahrina við Raufarhólshelli

Auður Alfífa Ketilsdóttir Yfir hundrað jarðskjálftar hafa mælst við Raufarhólshelli við Þrengslaveg í kvöld. Um er að ræða litla jarðskjálftahrinu en að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvásérfræðings á Veðurstofu Íslands, er svæðið þekkt jarðskjálftasvæði og minnir hrinan á aðrar álíka hrinur sem hafa orðið á svæðinu. „Þetta er ekki daglegt en við sjáum þetta öðru hverju.“ Elísabet segir að ekkert bendi til þess að gos sé í aðsigi, enginn órói hefur mælst, um sé að ræða hefðbundna skjálftahrinu. Veðurstofunni hafa ekki borist neinar tilkynningar um að skjálftarnir hafi fundist í byggð, stærstu skjálftarnir hafa mælst í kringum 2,5.