Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le

Systur Davíðs Viðarssonar fullyrða að hann hafi ekki verið blekktur til að gifta sig af veitingamanninum Quang Le heldur hafi hann samið um að þiggja af honum eina og hálfa milljón króna fyrir að giftast kærustu Quang Le í Víetnam svo hún hafi getað flust til Íslands. Davíð neitar þessu og segir viðbúið að þær tækju sig saman gegn sér, í ljósi sögu ósættis innan fjölskyldunnar. Hann fagnar því í dag að börn Quang Le séu ekki lengur skráð sín eigin.