Sunnan stormur og talsverð úrkoma víða um land — vegum lokað eða settir á óvissustig

Gul viðvörun er í gildi fyrir Breiðafjörð og Vestfirði vegna sunnan storms og talsverðrar slyddu eða rigningar. Staðbundið geta hviður farið yfir 35 metra á sekúndu. Veðurstofan varar við varasömu ferðaveðri og vatnavöxtum og hvetur fólk til að hreinsa frá niðurföllum. Viðvaranir taka gildi fyrir miðhálendið, Strandir og Norðurland þegar líður á nóttina og morguninn. Undir hádegi bætast við viðvaranir fyrir Austfirði og Austurland að Glettingi. Holtavörðuheiði verður lokuð frá miðnætti í kvöld vegna veðurs og Öxnadalsheiði verður ófær í nótt að því er segir á vef Vegagerðarinnar . Vegir lokaðir eða á óvissustigi Óvissustig verður á Fróðárheiði og Bröttubrekku fram yfir hádegi á morgun. Þar gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð verður einnig lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu og fleiri vegir á Norðvesturlandi verða á óvissustigi í nótt. Mörg snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum og utanverðum Tröllaskaga frá því á fimmtudag í síðustu viku. Vegurinn um Fróðárheiði er ófær og verður á óvissustigi til klukkan tvö eftir hádegi á morgun; það á einnig við um Bröttubrekku, Klettsháls, Dynjandisheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskulda. Óvissustig er á Siglufjarðarvegi, í Ólafsfjarðarmúla sem getur lokast með stuttum fyrirvara og Öxnadalsheiði sem líklega verður lokað klukkan sex. Veðurspáin er annars svohljóðandi: Vaxandi sunnanátt með slyddu eða rigningu og hlýnar. Allhvass sunnanvindur, hvassviðri, stormur eða rok m/s í fyrramálið, hvassast norðan heiða. Talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomuminna um landið norðaustanvert. Hiti fimm til þrettán stig um hádegi á morgun, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi. Allhvass suðvestanvindur, hvassviðri eða rok seinnipartinn og kólnar sunnan- og vestantil með skúrum og síðar éljum.