Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, kveðst reiðubúin að flýta fyrir samningaviðræðum um helstu forgangsmál Íslands, ákveði Íslendingar í þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja aðildarviðræður að nýju. Færsla Kos á X hefst á orðunum „Þann 29. ágúst greiða Íslendingar atkvæði um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við ESB“. Kos, sem er margreyndur slóvenskur diplómati, kvaðst í færslunni einnig hafa rætt sérstök málefni Íslands við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á fundi þeirra í Brussel í gær. Þar undirrituðu þær Þorgerður og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál . Ísland er níunda ríkið sem undirritar yfirlýsingu um samstarf í þeim efnum við Evrópusambandið. Hún felur hvorki í sér skuldbindingar fyrir landið né kvaðir um fjárframlög. Býsna langri fyrri umferð umræðna um þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar um framhald aðildarviðræðna lauk á Alþingi í vikunni og er komin inn á borð utanríkismálanefndar. Stefnt er að því að tillagan komi til síðari umræðu eftir sveitarstjórnarkosningar um miðjan maí. Alþingi þarf að samþykkja tillöguna fyrir 29. maí til þess að unnt verði að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst, eins og stefnt er að. Alls hefur átta sinnum verið efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi, þar af aðeins þrisvar eftir lýðveldisstofnun. Árið 2012 var síðast haldin þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.