Byltingarvörðurinn hótar gereyðingu gas- og olíuvinnslustöðva í nágrannaríkjunum

Íranski byltingarvörðurinn hótar nágrannaríkjunum við Persaflóa gereyðingu allra olíu- og gasinnviða hætti Ísraelar og Bandaríkjamenn ekki að gera árásir á orkuinnviði Írans. Í yfirlýsingu byltingarvarðarins segir að næstu árásir verði mun þyngri en sú sem gerð var á stærstu gasdreifingarstöð heims í Ras Laffan í Katar. Byltingarvörðurinn segist hafa gert tvær eldflaugaárásir á stöðina og þar logi miklir eldar. Forsetinn Masoud Pezeshkian varaði við geysihörðum afleiðingum af atlögum að orkuinnviðum eftir að stór gasframleiðslustöð í Íran skemmdist í árás. Sameinuðu arabísku furstadæmin og Katar fordæmdu þá árás, hvort í sínu lagi. Allri gasvinnslu í Habsan-stöðinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur verið slegið á frest eftir eldflaugaárás í nótt. Yfirvöld segja eldflaugina hafa verið skotna niður en brak úr henni hafi skollið á vinnslustöðinni og nærliggjandi olíuvinnslusvæði. Engan sakaði að sögn stjórnvalda. Íröksku sveitirnar Kataeb Hezbollah, sem eru hliðhollar Íran, segjast ætla að láta af árásum á bandaríska sendiráðið í Bagdad um fimm daga skeið að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þau helstu eru að Ísraelsher hætti atlögum að úthverfum líbönsku höfuðborgarinnar Beirút, þar sem höfuðvígi Hezbollah er að finna, og að herir Ísraels og Bandaríkjanna geri ekki árásir á íbúðasvæði í Írak.