Takaichi sögð þurfa að sýna mikla jafnvægislist á fundi með Trump

Japanski forsætisráðherrann Sanae Takaichi hittir Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag á viðkvæmum tímapunkti. Trump gagnrýndi japönsk stjórnvöld í færslu á Truth Social fyrr vikunni fyrir að bregðast ekki við ákalli um liðsinni við að halda Hormússundi opnu. Trump lét einnig ríki Atlantshafsbandalagsins heyra það, Ástrali og Suður-Kóreumenn. „Við þörfnumst hvorki lengur né viljum aðstoð frá ríkjum NATO. VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI! Ekki frekar en hjálp frá Japan , Ástralíu og Suður-Kóreu,“ skrifaði Trump. Því segja greinendur að Takaichi þurfi að sýna mikla jafnvægislist svo hún ergi hvorki Trump meira né fari á svig við ákvæði japönsku stjórnarskrárinnar frá 1947 sem byggir mjög á friðarhugsjón. Forsætisráðherrann kvaðst í þingræðu á miðvikudag ætla að gera Trump ljóst að Japanir geri aðeins það sem lögin leyfi þeim. Hún hefur þó látið hjá líða að gagnrýna Trump opinberlega og stríðsreksturinn í Mið-Austurlöndum. Japanir reiða sig á Bandaríkin við landvarnir Japan reiðir sig enda mjög á liðsinni Bandaríkjanna við landvarnir þar sem um það bil 60 þúsund bandarískir hermenn hafa aðsetur. Japanskur almenningur er almennt hlynntur ákvæðum stjórnarskrárinnar og því gæti það reynst afar viðkvæmt pólítískt séð að senda herinn til fjarlægra landa, enda ætlaður til heimavarna. Stríðið setur strik í efnahagsreikning Japans, sem er fimmti stærsti olíuinnflytjandi heims, megnið kemur frá Mið-Austurlöndum og sjötíu prósent er flutt um Hormússund. Sanae Takaichi mun að líkindum einnig ræða viðskipti milli landanna við Trump. Japanir hafa heitið 550 milljarða dala fjárfestingu í Bandaríkjunum í skiptum fyrir að Trump lækkaði tolla úr 25 í 15 af hundraði í fyrra.