Olíuverð hækkaði á Asíumarkaði eftir árásir á gas- og olíuvinnslustöðvar

Olíuverð hækkaði um 2,5 til 5 af hundraði við opnun Asíumarkaða í morgun. Hækkunin er rakin til árása stríðandi fylkinga í Mið-Austurlöndum á gas- og olíuvinnslustöðvar. Stærsta gasvinnslustöð Katar skemmdist mikið í loftárás Íranshers. Verð á Brent-Norðursjávarolíu hækkaði um fimm prósent þegar markaðir voru opnaðir í Asíu í morgun og Texas Intermediate hækkaði um tvö og hálft. Tunnan af henni kostar tæpa 99 bandaríkjadali og verð á Norðursjávarolíutunnu er tæplega 113 dalir. Hækkunina má rekja til vaxandi spennu vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum þar sem gerðar hafa verið árásir á olíu- og gasmiðstöðvar og Íranir hóta enn þyngri atlögum á Persaflóaríkin. Donald Trump segir í færslu á Truth Social að Bandaríkin og Katar eigi engan þátt í árás á stóra gasvinnslustöð í Íran í gær, Ísrael beri fulla ábyrgð á henni. Hann segir Ísraela hafa látið hjá líða að tilkynna samherjum sínum um að atlagan stæði til. Íransher gerði árás á Ras Laffan, stærstu gasvinnslustöð Katar, í hefndarskyni. Þarlend stjórnvöld segja stöðina mikið skemmda en engin tíðindi hafa borist af manntjóni. Eldur logar í flutningaskipi sem liggur við festar undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna eftir eldflaugaárás, að sögn bresku siglingamálastofnunarinnar UKMTO. Skipið er ekki langt frá Hormússundi, sem Íranar hafa nánast lokað algerlega.