Dularfullra flygilda hefur orðið vart undanfarna tíu daga yfir Lesley J. McNair-herstöðinni nærri Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Pete Hegseth er varnar- eða stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna.EPA / JIM LO SCALZO / POOL The Washington Post greinir frá þessu og segir að yfirvöld hafi gripið til hertra öryggisráðstafana vegna drónaflugsins og haldið neyðarfundi í Hvíta húsinu. Herstöðin er ekki fjarri heimilum utanríkisráðherrans Marco Rubio og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra. Blaðið segir hvorki vitað hvaðan flygildin koma né hver stjórni þeim en segir þau hafa tekið að birtast eftir að Bandaríkin hófu þungar árásir á Íran í samvinnu við Ísraelsríki.