Miðflokkurinn vill tryggja ábyrga stjórn á fjármálum Reykjavíkurborgar svo að hægt sé að bæta grunnþjónustu við fólk og fyrirtæki. Það er orðið tímabært að minnka gullhúðun stjórnsýslunnar og einbeita sér að kjarnastarfsemi borgarinnar. Forgangsröðun í rekstrinum er hér lykilatriði. Það á einnig við um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækja þess.