Einn almennur borgari var drepinn og tveir særðust lítillega þegar Úkraínuher gerði drónaárás á hafnarborgina Sevastopol á Krímskaga í nótt. Rússneskur kafbátur úr Svartahafsflotanum siglir fram hjá Istanbúl í Tyrklandi.EPA / ERDEM SAHIN Borgin er heimahöfn Svartahafsflota Rússlands og Úkraínumenn hafa iðulega gert þar árásir í rúmlega fjögurra ára gömlu innrásarstríðinu. Landstjóri Rússa segir að flotinn og loftvarnarkerfi borgarinnar hafi skotið niður 27 úkraínska dróna yfir Sevastopol. Loftvarnarkerfi í rússneska héraðinu Stavropol grönduðu fjölda dróna sem stefndu á iðnaðarsvæði. Úkraínumenn segja þrjá hafa særst í loftárás á hafnarborgina Odesu í nótt.