Meðgönguþoka: hvað er að gerast í heilanum?

Flestir hafa heyrt talað um að vera utan við sig eða upplifa minnisskort og aukna tilfinninganæmni á meðgöngu. Þetta getur til dæmis birst í því að keyra með barnið í vinnuna en ekki í leikskólann, ganga frá mjólkinni upp í skáp í stað ísskápsins, gleyma eigin kennitölu eða fara að hágráta yfir tryggingaauglýsingu í sjónvarpinu.