Það er alltaf hægt að ganga að því vísu að stjórnarandstaðan á Alþingi á þessu kjörtímabili hoppi á hvert tækifæri til að fyllast af illkátni þegar áskoranir birtast í samfélaginu og prjóni svo yfir sig í slælega undirbyggðum yfirlýsingum um að allt sé hér að fara til helvítis.