Rólegheit á fasteignamarkaði

Fasteignasalar lýsa húsnæðismarkaði sem miklum kaupendamarkaði og segja algengara en áður að verð sé lækkað í söluferli, að því er kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markaðurinn er rólegur og lítill verðþrýstingur síðustu mánuði. HMS segir að eftir miklar verðhækkanir síðustu ár eigi sér stað aðlögun þar sem íbúðaverð hefur hækkað minna en verðlag síðan í fyrrasumar. Íbúðaverð hefur því lækkað að raunvirði. Dregið hefur úr verðþrýstingi á leigumarkaði síðustu misseri og leiguverð staðið í stað að raunvirði síðustu tólf mánuði. Íbúðarhúsnæði á Ísafirði.Aðsent / Bartosz Kozik