„Ég hef tekið þá ákvörðun að afsala mér Íslensku tónlistarverðlaununum og öllum þeim tilnefningum sem ég hef hlotið,“ segir tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir og þar með hafi hún sagt sitt síðasta í málinu sem hófst með „til- og fránefningu“ hennar til verðlaunanna í ár.