Á næstu dögum verður í fyrsta sinn hægt að kaupa skartgripi í brottfararverslun Ísland Duty Free. Verslunin hefur samið við Sif Jakobs um sölu á fjölbreyttu úrvali eyrnalokka, hálsmena, armbanda og hringa úr vinsælustu línum Sif Jakobs en Sif Jakobs Jewellery er eitt þekktasta skartgripavörumerki Norðurlanda.