Ísraelska leyniþjónustufyrirtækið Black Cube er sakað um leka upptökum sem var aflað með leynilegu eftirliti og hlerunum til þess að koma höggi á forsætisráðherra Slóveníu rétt fyrir kosningar. Sama fyrirtæki njósnaði um son íslensks þingmanns og kom leynilegum upptökum af honum í umferð.