Eyjagöng ætla að hefja rannsóknarboranir í næsta mánuði til að kanna möguleika á fastri vegtengingu milli lands og Eyja. Fyrirtækið hefur samið við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmdina. Hún á að veita innsýn í jarðlög og undirstöður á fyrirhugaðri leið. Borað verður á tveimur stöðum, á Eiðinu á Heimaey og á Landeyjasandi við bæinn Kross. Hefja á boranir snemma í apríl og klára þær fyrir lok mánaðar. Vinna á úr sýnum fram í byrjun júlí. Aðsend / Eyjagöng