Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu
Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að hækka fjárframlög til BBC World Service um ellefu milljónir punda á ári næstu þrjú árin. Fjármagninu er ætlað að efla starfsemina í ljósi aukinnar upplýsingaóreiðu í heiminum.