Stríðsbloggari snýst gegn Pútín

Færsla sem rússneski stríðsbloggarinn Ilya Remeslo birti á Telegram á þriðjudagskvöld hefur vakið athygli í Rússlandi og víðar því þar gagnrýnir hann Pútín harðlega. Remeslo hefur verið mikill stuðningsmaður Pútíns og stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu en nú kveður við annan tón. Færslan ber yfirskriftina Fimm ástæður þess að ég hætti að styðja Vladimír Pútín. Remeslo sakar Pútín um að senda hermenn út í opinn dauðann á víglínunni í Úkraínu. Hann sakar Pútín einnig um að hafa eyðilagt efnahag Rússlands, rýrt lífskjör almennings, hert tökin á fjölmiðlum og netinu og leyft spillingu að grassera. „Vladimír Pútín er ekki réttkjörinn forseti. Vladimír Pútín þarf að segja af sér og fara fyrir dóm sem stríðsglæpamaður og þjófur,“ segir í yfirlýsingunni á Telegram. Studdi ofsóknir gegn Navalny Remeslo hefur lengi gengið erinda stjórnvalda í Kreml. Hann var einn þeirra sem gengu harðlega gegn stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny þegar hann á var á lífi. Þá sást til Remeslo í dómssal í réttarhöldum yfir Navalny, að því er fram kemur í umfjöllun útlæga rússneska fjölmiðilsins The Moscow Times . Remeslo sagðist standa við ummælin um Pútín í viðtali við útlæga rússneska fjölmiðilinn Agentstvo á miðvikudag, daginn eftir að hann birti færsluna. Hnn ítrekaði að lífsskilyrði í Rússlandi hefðu versnað til muna og kvaðst fullviss um að einhver í innsta hring Pútíns myndi sýna honum færsluna. Ætlar ekki að flýja land nema fjölskyldunni verði hótað Remeslo býr í Pétursborg og ætlar að búa áfram í Rússlandi svo lengi sem fjölskyldu hans verði ekki ógnað. Hann kveðst reiðubúinn að taka því sem verða vill eftir viðsnúninginn, svo sem hverjum þeim ákærum sem hann geti átt yfir höfði sér. Hann vonar að aðrir fylgi fordæmi hans og láti gagnrýni á stjórnvöldum í ljós. Það væri ekki raunhæft fyrir stjórnvöld að setja alla í fangelsi sem gagnrýni Pútín. „Það væri algjört rugl og kerfið myndi ekki ráða við það,“ sagði hann við Agentstvo . Stríðsbloggarar í Rússlandi eru flestir fylgjandi hernaði Rússa í Úkraínu og tjá sig um gang stríðsins á netinu og þá helst á samfélagsmiðlinum Telegram. Það hefur vissulega áður gerst að einhver úr hópnum gagnrýnir stjórnvöld. Hörð gagnrýni eins og birtist í færslu Remeslos er þó sjaldséð, segir í umfjöllun The Moscow Times. Ýmsir velta vöngum yfir færslunni og hvort eitthvað furðulegt sé á seyði. Sjónvarpsmaðurinn Vladimir Solovyov, sem styður stjórnvöld, hefur velt því upp hvort Remeslo hafi misst vitið eða gerst liðhlaupi. Þá segir í umfjöllun The Moscow Times að yfirmaður sérsveita leiðtoga Tétsníu, Apti Alaudinov, hafi lýst þeirri skoðun að Remeslo hafi alltaf verið yfirvegaður og því megi velta fyrir sér hvort honum hafi mögulega verið rænt.