Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir ljóst að samgöngumál hafi verið vanfjármögnuð of lengi, hann sé tilbúinn að flýta ýmsum framkvæmdum fáist til þess fjármagn. Ráðherra sat í morgun fyrir svörum á opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um samgönguáætlun 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, gekk á ráðherra um forgangsröðun jarðganga og þá ákvörðun stjórnvalda að slá Fjarðarheiðargöng út af borðinu og spurði hvort það væri pólitísk ákvörðun. Ráðherra sagði náttúruvá mikla vegna snjóflóðahættu en Fljótagöng voru sett í forgang en þau eiga að koma í stað Strákaganga og vegar um Almenninga. Málaflokkurinn vanfjármagnaður allt of lengi Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði innviðaráðherra á opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins í morgun hvort hann myndi styðja það að flýta Miklubrautargöngum til að bregðast við gríðarlegum umferðarþunga í miðborginni á álagstímum. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði mikinn áhuga á samgöngumálum og ljóst að málaflokkurinn hafi verið vanfjármagnaður allt of lengi. Hann sagðist tilbúinn að flýta Miklubrautargöngum ef til þess fáist nægilegt fjármagn. Sú ákvörðun gæti orðið hluti af endurskoðun samgöngusáttmála. Ingibjörg Davíðsdóttir þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi spurði ráðherra út í það sem hún kallaði borgarlínurugl og hvort ekki mætti standa að því verkefni með hagkvæmari hætti. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talaði um mikilvægi þess að bæta Hvalfjarðargöng, þar sé fyrirséð að verði umferðaraukning í nánustu framtíð. Eyjólfur tók undir það og sagði að þörf fyrir Hvalfjarðargöng tvö verði knýjandi eftir að Sundabraut verður tekin í gagnið.