Spacey sleppur við dóm­salinn með sátt við þrjá menn

Leikarinn Kevin Spacey hefur gert sátt við þrjá menn sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi. Málið átti að fara fyrir dómara í Lundúnum síðar á þessu ári en ekki verður af því. Fjöldi karlmanna steig fram í MeToo-bylgjunni og sakaði Spacey um kynferðisbrot en málin hafa ýmist verið felld niður eða hann sýknaður.