Deilan leyst og spilað í Boston

Náðst hefur niðurstaða milli deilandi aðila sem koma að leikjum á HM karla í fótbolta í Foxborough í nánd við Boston. Síðustu vikur hefur óvissa ríkt um leiki þar á bæ vegna deilna um greiðslur.