ESB- um­ræðan á Ís­landi er orðin ó­þolandi lé­leg

Það er erfitt að taka íslenska ESB-umræðu alvarlega þegar svo margir sem taka til máls virðast hafa meiri áhuga á að hræða fólk en upplýsa það. Í stað þess að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni þjóðarinnar af ábyrgð, staðreyndum og yfirvegun, er almenningi boðið upp á endalausan hávaða, ódýr slagorð og gamla skotgrafahugsun.