Bandaríski kylfingurinn Anthony Kim storkaði örlagadísunum þegar hann reyndi fyrir nokkrum misserum að snúa aftur í keppnisgolf eftir rúmlega áratugs fjarveru. Skemmst er frá því að segja að hann var glataður og golfspekúlantar afskrifuðu alveg þessa annars krúttlegu endurkomu. En þó með trega. Allir héldu, jú, með honum, enda merkilegt að fyrrum ungstirni, sem beygt hefði af beinu brautinni og endað í harðri neyslu árum saman, skyldi reyna að komast aftur í röð þeirra bestu. Anthony Kim neitaði þó að gefast upp. Hann æfði stíft og lagði á sig gríðarlega vinnu, sem á endanum skilaði sér. Fyrir nokkrum vikum vann hann stórt golfmót á móti nokkrum af bestu kylfingum heims. Endurkomusaga hans er einhver sú mest grípandi sem sögð hefur verið í íþróttasögunni.