„Þetta er náttúr­lega djöfulsins bruðl“

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var að fá svar frá forsætisráðherra um biðlaun ráðherra og hún rak upp stór augu. Á árinu 2025 greiddi ríkið rúmar níu milljónir vegna biðlauna fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og á yfirstandandi ári tæpar 8 milljónir vegna biðlauna fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra.