Slökkviliðsstjóri segist hugsi yfir fréttum af því að ekki hafi verið brugðist við ítrekuðum kröfum um bættar brunavarnir í aðdraganda bruna á Stuðlum árið 2024 þar sem einn lést. Ljóst sé að eigandi hússins beri ábyrgð á brunavörnum samkvæmt lögum, til greina komi að forgangsraða brunavarnareftirliti með opinberum byggingum.