Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hlaut skammir í hattinn frá forseta Alþingis fyrir að tala ensku í ræðustól. Hann gerði í kjölfarið tilraun til að þýða tilvitnun í Dwight Eisenhower, fyrrum Bandaríkjaforseta, og þá hló þingheimur.