Tvö eða þrjú framboð: Svona verða bæjarstjórnarkosningar í Grindavík

Minnst tveir flokkar bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga í Grindavík í maí. Rúmlega 900 eru með lögheimili í bænum, þar af u.þ.b. 800 með kosningarétt. Þeim sem voru með lögheimili sitt í Grindavík 9. nóvember 2023 býðst að skrá sig á kjörskrá og kjósa. 118 brottfluttir höfðu skráð sig á kjörskrá í gær, segir Kjartan Friðrik Adólfsson, formaður kjörstjórnar Grindavíkur. Hann kveðst gera ráð fyrir því að fleiri bætist við áður en frestur til skráningar rennur út 1. apríl. Í bæjarstjórn Grindavíkur sitja fulltrúar fjögurra flokka. Flesta fulltrúa á Miðflokkurinn, eða 3, þar á eftir er Sjálfstæðisflokkurinn með tvo og Framsóknarflokkurinn og Rödd unga fólksins eiga einn fulltrúa hvor. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Raddar unga fólksins mynda meirihluta og fulltrúar Miðflokksins minnihluta. Aðstæður í bænum hafa umturnast síðan í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Bærinn var rýmdur vegna eldsumbrota 10. nóvember 2023. Síðan hefur gosið níu sinnum, síðast 16. júlí í fyrra. Líklegt er að gjósi aftur og kvikumagn undir Svartsengi talið vera orðið meira en nokkru sinni áður. Þegar ljóst varð að Grindvíkingar gætu ekki snúið aftur heim í bráð setti ríkið á fót fasteignafélagið Þórkötlu sem keypti eignir fólks. Nú hefur rýmingum að miklu leyti verið aflétt, í það minnst á meðan ekki gýs, og fjöldi fólks heldur til í bænum. Sefnt er að skólahaldi í haust í fyrsta sinn síðan bærinn var rýmdur fyrir rúmum tveimur árum. Í sveitarstjórnarkosningunum býðst íbúum og þeim sem bjuggu í bænum fyrir umhleypingarnar, og vilja hafa áhrif á framtíð bæjarins, að kjósa sér nýja bæjarstjórn. Unga fólkið tekur sér pásu og óvíst með framboð Miðflokksins Kjartan segir engan hafa skilað inn framboði til kjörstjórnar, en að tveir flokkar hafi birt framboðslista og umræða sé um þriðja framboðið. Frestur til að skila inn framboði rennur út 10. apríl. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn birtu sína framboðslista á samfélagsmiðlum í vikunni. Athygli vakti að í 11. sæti á lista Framsóknarflokksins er formaður Samfylkingarinnar í Grindavík. Hann sagði í samtali við Vísi í gær að hann væri alls ekki hættur í Samfylkingunni. Hann sagði að ekki hafi nægilega margir viljað taka sæti á lista Samfylkingarinnar í bænum, og hann hefði því ákveðið að láta slag standa með Framsóknaflokknum í þetta sinn. Rödd unga fólksins, sem á einn bæjarfulltrúa og er í meirihluta, hefur tilkynnt að félagið bjóði ekki fram í þessum kosningum. Í tilkynningu frá flokknum segir að aðstandendur hans búi, eins og aðrir Grindvíkingar, víðsvegar um landið og að enginn þeirra sem eftir standi hafi raunhæfa möguleika á að halda áfram í bæjarstjórn og takast á við þá yfirgripsmiklu vinnu sem framundan er í bænum. Þar segir þó að flokkurinn sé hvergi nærri hættur og stefni að endurkomu í sveitarstjórnarkosningum 2030. Þá stendur eftir stærsti flokkurinn í bæjarstjórn Grindavíkur, Miðflokkurinn. Flokkurinn hélt aðalfund 17. febrúar og í tilkynningu um fundinn var einnig óskað eftir áhugasömu fólki um að taka sæti á lista flokksins í næstu sveitarstjórnarkosningum. Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi og formaður Miðflokksins í Grindavík, sagði í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að listinn væri ekki tilbúinn og að hann gæti ekki staðfest, að svo stöddu, að flokkurinn byði fram. Leita að varakjörstað Stefnt er að því að Grindvíkingar, búsettir og brottfluttir, kjósi í Grunnskóla Grindavíkur, venju samkvæmt. Kjartan, formaður kjörstjórnar, segir að leit standi yfir að varakjörstað, ef ske kynni að rýming yrði í gildi 16. maí. Varakjörstaðurinn yrði líklega í Reykjanesbæ. Þá hafa kjósendur í Grindavík, líkt og annars staðar, kost á því að greiða atkvæði sitt utan kjörfundar.