„Mjög vont veður sem mun ef­laust skapa vanda­mál“

Gular viðvaranir verða í gildi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og búast má við truflunum á samgöngum. Öllu innanlandsflugi Icelandair hefur verið aflýst í dag og farþegum sem eiga flug eiga til og frá Evrópu í fyrramálið verið boðið að færa sig í önnur flug.