Lögreglukona sektuð fyrir uppflettingu í LÖKE

Aníta Rut Harðardóttir var í dag sakfelld fyrir uppflettingar í upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE, í Héraðsdómi Reykjaness. Hún hlaut sekt en verður ekki gert að sæta fangelsisvist. Aníta var ákærð fyrir brot í starfi í nóvember síðastliðnum. Átti hún að hafa unnið það sér til saka að hafa ítrekað flett upp í málaskrá lögreglunnar málum sem vörðuðu vandamenn hennar og aðra sem þeim tengdust. Uppflettingarnar voru allar gerðar sama dag og tengdust sex málum í málaskránni. Skoðaði hún alls 20 bókanir. Aníta hefur áður verið í fréttum vegna merkis á lögreglubúning hennar. Fánar sem sáust á búningi hennar á mynd var deilt á samfélagsmiðlum vöktu athygli. Aníta vísaði því á bug að merkin tengdust hatursorðræðu en upplýsingafulltrúi lögreglunnar sagði málið litið alvarlegum augum.